Starfið framundan

(1502098)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
17.03.2015 42. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Starfið framundan
Formaður gerði grein fyrir svari Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, til nefndarinnar í tengslum við lekamálið svokallaða. Nefndin ræddi málið.

Formaður fór yfir stöðu nokkurra mála í nefndinni.
12.03.2015 41. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Starfið framundan
Formaður kynnti drög að bréfi til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, þar sem ítrekað er boð um að koma á fund nefndarinnar frá 22. janúar sl. og óskað skriflegs svars fyrir næsta fund nefndarinnar, 17. mars. nk. Samþykkt að senda henni bréfið.
12.03.2015 40. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Starfið framundan
Frestað að taka fyrir.
24.02.2015 33. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Starfið framundan
Formaður fór yfir mál sem liggja fyrir í nefndinni og næstu fundi.